Lækka leikskólagjöld um fjórðung

Seltjarnarnes
Seltjarnarnes mbl.is/Golli

Leikskólagjöld á Seltjarnarnesi lækka um 25% um áramót og verða þar með þau lægstu á landinu, samkvæmt tilkynningu frá Seltjarnarnesbæ.

Seltjarnarnesbær hefur gefið út fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 og næstu þrjú ár þar á eftir og var hún var lögð fram til fyrri umræðu í gær. Þar er gert ráð fyrir að tekjur bæjarfélagsins verði tæpir 2,5 milljarðar króna og rekstrarafgangur 16 milljónir króna.
Lækkun leikskólagjalda um 25% frá 1. janúar er ætlað að koma til móts við barnafjölskyldur í bæjarfélaginu. Tómstundastyrkir með hverju barni 6-18 ára verða kr. 50.000 og niðurgreiðslur til foreldra með börn hjá dagforeldrum, sem nú nema kr. 75.000, verða einnig auknar frá 1. janúar nk., segir í fréttatilkynningu.

Álagning fasteignagjalda í A-flokki verður 0,20% af matsverði íbúðarhúsnæðis og lóðar og álagningarprósenta útsvars verður langt undir hámarki eða 13,70%, en hámarkið er 14,52%.

Helstu framkvæmdir á næsta ári felast í byggingu 40 rýma hjúkrunarheimilis. Einnig stendur til að endurnýja gervigrasið á knattspyrnuvelli íþróttafélagsins Gróttu ásamt því að sinna öðrum almennum viðhaldsframkvæmdum.

Skuldahlutfall er komið undir 50% og lækkar með hverju ári, segir ennfremur í fréttatilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert