Vilja eftirlitsnefnd með lögreglu

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Júlíus

Nefnd sem innanríkisráðherra skipaði í ársbyrjun um meðferð kærumála og kvartana á hendur lögreglu skilaði í dag ráðherra niðurstöðu sinni. Er þar lagt til að ráðherra skipi þriggja manna eftirlitsnefnd með störfum lögreglu sem hafi það verkefni að taka við erindum frá borgurunum, yfirfara þau og greina hvort um sé að ræða kæru um refsiverða háttsemi eða kvörtun er lúti að starfsaðferðum lögreglu, og komi erindum í viðeigandi farveg.

Kemur þetta fram á vef innanríkisráðuneytisins.

Þar segir einnig að nefndin hafi lagt fram drög að breytingum á lögum sem nauðsynlegar eru með hliðsjón af þessum tillögum.

„Ólöf Nordal innanríkisráðherra sagði þegar skýrslan var kynnt fyrir henni að sér litist mjög vel á tillögurnar og að þegar yrði hafinn undirbúningur að því að hrinda þeim í framkvæmd. Sagði hún mikilvægt að mál sem þessi hefðu öruggan farveg og að borgararnir hefðu vissu fyrir því að á þá væri hlustað,“ segir á vef ráðuneytisins.

„Í niðurstöðum nefndarinnar er bent á að gera verði skýran greinarmun annars vegar á meðferð kærumála vegna meintra refsiverðra brota starfsmanna lögreglu og hins vegar á meðferð mála er lúta að kvörtunum vegna starfshátta lögreglu ýmist vegna aðferða einstakra lögreglumanna eða almennra starfshátta. Þá er í skýrslunni yfirlit yfir kærur á hendur lögreglu árin 2005 til 2014 og kemur þar fram að fjöldi mála er frá 17 og upp í 36 á ári og er gerð grein fyrir afdrifum málanna, þ.e. hvort þeim var vísað frá, þau rannsökuð og hvort ákært var eða mál fellt niður, og er þar byggt á ársskýrslum ríkissaksóknara.“

Helstu tillögur nefndarinnar:

Ráðherra skipi  þriggja manna stjórnsýslunefnd, eftirlitsnefnd með störfum lögreglu, sem hafi það verkefni að taka við erindum frá borgurunum, yfirfara þau og greina hvort um sé að ræða kæru um refsiverða háttsemi eða kvörtun er lúti að starfsaðferðum lögreglu.

Nefndin komi erindum í viðeigandi farveg, hvort heldur sem er hjá héraðssaksóknara/ríkissaksóknara, viðkomandi lögreglustjóra eða ríkislögreglustjóra. Þessum embættum beri jafnframt að tilkynna nefndinni um kærur og kvartanir sem berast embættunum beint frá borgurum og tilkynna nefndinni um niðurstöðu mála þegar þær liggja fyrir. Með því verði tryggt að erindi borgarans verði tekið til viðeigandi skoðunar og meðferðar. Ekki er gert ráð fyrir því að nefndin taki beinan þátt í meðferð máls sem hún beinir annað. Hins vegar geti hún komið á framfæri athugasemdum við málsmeðferðina og niðurstöðu málsins, ef tilefni þykir til.

Nefndin verði skipuð þremur nefndarmönnum, einum tilnefndum af Lögmannafélagi Íslands, öðrum af Mannréttindaskrifstofu Íslands en sá þriðji verði skipaður af innanríkisráðherra og verði hann jafnframt formaður nefndarinnar.

Frekari upplýsingar eru að finna á vef innanríkisráðuneytisins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert