Allt á kafi í höfuðborginni

Mikill snjór var á götum höfuðborgarsvæðisins í morgun.
Mikill snjór var á götum höfuðborgarsvæðisins í morgun. Mynd/Þorsteinn Ásgrímsson

Allt er á kafi í snjó á höfuðborgarsvæðinu eftir mikla snjókomu í nótt. Samkvæmt Vegagerðinni eru allar stofnæðar borgarinnar færar, en enn eiga sveitarfélög eftir að moka megnið af íbúðagötum.

Samkvæmt upplýsingum frá Halldóri Þórhallssyni, umsjónarmanni snjóruðninga í Reykjavík, er ástandið talsvert verra en í gærmorgun og segir hann allavega 10-15 sentímetra jafnfallinn snjó. Vel gangi þó að ryðja helstu stofleiðir og strætógötur, en að ekki verði byrjað að fara í húsagötur fyrr en upp úr átta. 

„Það er ófærð í húsagötum núna,“ segir hann, en reiknað er með því að ruðningi ljúki ekki fyrr en seinni partinn í dag. Aðspurður hvort vegfarendur eigi að hafa eitthvað í huga áður en haldið er út segir hann að það sé fyrst og fremst að vera þolinmóðir. „Fólk þarf að gefa sér tíma í dag,“ segir hann.

Á vegum Reykjavíkurborgar eru nú 10 tæki úti að moka, en klukkan átta verða þau orðin tæplega 20 talsins að sögn Halldórs.

Ljóst er að íbúar munu þurfa að skafa mikinn snjó …
Ljóst er að íbúar munu þurfa að skafa mikinn snjó af bílum sínum áður en haldið er af stað. Mynd/Þorsteinn Ásgrímsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert