Allt flug á áætlun

Snórinn hefur ekki áhrif á flug innanlands eða til og …
Snórinn hefur ekki áhrif á flug innanlands eða til og frá landinu. Photo: Frikki

Þrátt fyrir talsverða snjókomu síðasta hálfa sólarhringinn er gert ráð fyrir að allt flug á landinu verði á áætlun í dag. Þegar hefur fjöldi véla farið frá Keflavík í morgun á réttum tíma og þá eru öll flug Flugfélags Íslands á áætlun. 

Aðrar samgöngur virðast einnig í skorðum og samkvæmt upplýsingum frá Strætó bs eru allar leiðir á áætlun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert