Kveikt á jólatré Kópavogsbúa

Tendrað var á jólatré frá vinabæ Kópavogs, Norrköping, og slegið upp jólaballi í dag. Nokkrir hressir jólasveinar komu ofan úr fjöllum og mættu á ballið, ungum og öldnum til mikillar gleði. Veðrið lék við Kópavogsbúa sem fögnuðu upphafi aðventunnar í sannkölluðu jólaveðri, samkvæmt fréttatilkynningu.

 Aðventuhátíðin fór fram á túninu við menningarhúsin í Kópavogi. Ýmsar krásir voru til sölu í jólahúsum úti við. Þá var markaðurinn Handverk og hönnun í Gerðarsafni. Í safninu var einnig fyrsti formlegi opnunardagur Garðskálans, nýja kaffihússins í Gerðarsafni.

 Þess má geta að opið verður í menningarhúsum Kópavogs  á morgun sunnudag, jólaorigami í Bókasafni Kópavogs og  jólakortagerð í Gerðarsafni. Jólahúsin verða opin og kaffihúsið Garðskálinn sömuleiðis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert