Handtekinn fyrir heimilisofbeldi

mbl.is/G.Rúnar

Lögreglan handtók heimilisföður í Kópavogi á fimmta tímanum í morgun fyrir heimilisofbeldi og líkamsárás í heimahúsi. Hann gistir fangaklefa vegna rannsóknar málsins.

Skömmu fyrir eitt í nótt var tilkynnt um aðra líkamsárás í Kópavoginum en þar var maður sleginn í andlitið með þeim afleiðingum að það brotnuðu tvær tennur í honum. Hann var einnig með áverka á nefi. Ofbeldismaðurinn var farinn af vettvangi þegar lögregla kom en hún hefur upplýsingar um hver hann er þannig að hann verður væntanlega handtekinn í dag.

Á fimmta tímanum var tilkynnt um rúðubrot og jafnvel innbrot í söluturn í Grafarvogi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekki vitað hverjir voru þar að verki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert