Búið er að fresta ýmsum viðburðum á Siglufirði í dag vegna veðurs, en meðal annars átti að tendra ljós á jólatré bæjarins á Ráðhústorginu klukkan fjögur. Á vefnum Siglfirðingur kemur fram að vegna mikillar ofankomu og óhagstæðrar veðurspár hafi því verið frestað, sem og aðventuhátíð sem átti að vera í Siglufjarðarkirkju í kvöld.