Það var heldur sérstök aðkoman þegar Ísleifur Örn Garðarsson kom heim til sín við Akurgerði í Reykjavík á fimmta tímanum í dag. Ökumaður stórs pallbíls hafði misst stjórn á bílnum sem hafnaði í garði heimilisins, sem er við Grensásveg.
Að sögn Ísleifs er grindverk á lóð hans nokkuð skemmt og þar að auki eru smávægilegar steypuskemmdir á bílskúrnum. Enginn slasaðist við óhappið en ekki liggur fyrir hvað gerðist nákvæmlega.
Ísleifur birti meðfylgjandi myndir á Facebook.