Þungfært á Akureyri

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Þungfært er á Akureyri en snjó kyngdi niður í bænum í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er nýbyrjað að ryðja aðalleiðir en strætisvagnar bæjarins byrja að öllum líkindum ekki að ganga fyrr en kl. 7.30 eða 8.

Lögregla brýnir fyrir fólki að huga að því áður en lagt er af stað að það komist leiða sinna á ökutækjum sínum. Þungfært er og þæfingur á vegum umhverfis bæinn en einhver moksturstæki komin af stað, að sögn lögreglu.

Fólki sem ætlar eitthvað lengra þennan morgun er bent á að fylgjast vel með ástandinu á vef Vegagerðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert