Jarðhiti gegn hlýnun loftlags

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.

Tilkynnt var um stofnun alþjóðlegs samstöðuhóps um nýtingu jarðhita (Global Geothermal Alliance) á fundi í tengslum við ríkjaráðstefnu loftlagssamnings Sameinuðu þjóðanna í París, höfuðborg Frakklands, og hélt Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra opnunarávarp á honum. Fram kemur í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að á fjórða tug ríkja og stofnana eigi sæti í hópnum.

Gunnar Bragi sagði í ræðu sinni að alþjóðasamfélagið yrði að ná saman um metnaðarfull markmið í loftlagsmálum. Mikilvægt væri í því samhengi að nýta þá möguleika sem jarðhitinn, sem orkuauðlind, veitir víða um heim. „Fagnaði Gunnar Bragi þeim mikla áhuga sem samstöðuhópurinn hefur vakið, en á meðal stofnenda með Íslandi eru Frakkland, Bandaríkin, Ítalía og Nýja Sjáland, fjölmörg þróunarríki og fjölþjóðlegar stofnanir og aðilar á borð við Alþjóðabankann, Afríkusambandið og svæðabundna þróunarbanka. Orkustofnun, Íslenskar orkurannsóknir - ÍSOR og Jarðhitaskóli háskóla SÞ eru ennfremur stofnaðilar.“

Ráðherrann fjallaði í ræðunni um reynslu Íslendinga af nýtingu jarðhita og mikilvægi hans í að draga úr notkun jarðefniseldsneytis á Íslandi undanfarna þrjá áratugi. „Þá undirstrikaði hann mikilvægi þess að auka menntun og þekkingu í jarðhita á meðal sérfræðinga frá þróunarlöndum með starfsemi Jarðhitaskóla háskóla Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1978.“ Ísland hefur verið í fararbroddi ríkja um stofnun samstöðuhópsins en alþjóðleg samtök um endurnýjanlega orkugjafa, IRENA, hafa leitt vinnuna og munu vista samstarfsvettvanginn, sem verður í Abu Dhabi. Með samstarfshópnum er ætlað að búa til vettvang ríkja, stofnana og fyrirtækja sem vinna að aukinni nýtingu jarðhita á heimsvísu. 

„Markmið samstarfsins er að auka hlutdeild jarðhita í orkubúskap heimsins, að fimmfalda raforkuframleiðslu fyrir 2030 og tvöfalda jarðhita til húshitunar á sama tíma. Þá er samstarfsvettvangurinn liður í að styðja við frumkvæði framkvæmdastjóra SÞ um að auka hlutfall sjálfbærrar orku um meira en helming fram til ársins 2030 (Sustainable Energy for All by 2030),“ segir ennfremur í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert