Nýtt verkfæri fyrir áhættumat

Vinnueftirlitið

Vinnueftirlitið hefur gefið út nýtt rafrænt verkfæri til að gera áhættumat fyrir veitingahús og mötuneyti. Verkfærið er auðvelt í notkun, ókeypis og opið öllum. Í því eru settar fram tillögur og dæmi um úrbætur í vinnuumhverfinu, tilvísanir í lög og reglur og myndir til útskýringar. Verkfærið metur áhættu fyrir notandann og sér um að skrifa lokaskýrslu. Í framhaldinu þarf vinnustaðurinn að gera nauðsynlegar úrbætur. Þetta kemur fram á vef Vinnueftirlitsins.

Áhættumatið skiptist í sex efnisþætti; Móttaka og geymsla aðfanga, eldhúsið, veitingar og þjónustu; uppvask og þrif; tæki og búnaður; starfsanda og streitu og vinnuverndarstarf.

Komin eru út rafræn áhættumatverkfæri fyrir tvær „starfsgreinar“:

Áætlað er að fleiri verkfæri komi út á næstunni.

Evrópska vinnuverndarstofnunin í Bilbao á Spáni og hagsmunaaðilar á vinnumarkaði standa saman að gerð áhættumatsverkfæra undir nafninu OiRA sem stendur fyrir Online interactive Risk Assessment, eða á íslensku; rafrænt gagnvirkt áhættumat. Í dag taka 16 Evrópuríki þátt í þróun verkfæra og fleiri eru á leiðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert