Farið er að hvessa á Suðurnesjum og komið óveður og slæmt skyggni á Reykjanesbraut og á Grindavíkurvegi. Þá er hálka eða snjóþekja á flestum vegum á Suður- og Suðvesturlandi, m.a. hálka á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þar segir einnig um færð og aðstæður:
Hálkublettir og óveður er á Kjalarnesi. Hálka og óveður er undir Eyjafjöllum og við Vík.
Á Vesturlandi er hálka eða snjóþekja víðast hvar. Þungfært og skafrenningur er á Fróðárheiði.
Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja og skafrenningur á flestum leiðum. Snjóþekja og stórhríð er á Gemlufallsheiði. Þungfært er á Kleifarheiði en þæfingsfærð og skafrenningur í Patreksfirði og á Klettsháls. Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði eru ófærar einnig er ófært á Bjarnarfjarðarhálsi og þaðan norður í Árneshrepp.
Á Norður- og Austurlandi er hálka eða snjóþekja allvíða. Þæfingsfærð er á Siglufjarðarvegi en hálka og skafrenningur er á Víkurskarði. Flughálka er á Dettifossvegi. Þæfingsfærð er á Öxi og Breiðdalsheiði en hálkublettir og smá éljagangur eru með suðausturströndinni.