Auður Jónsdóttir, Einar Már Guðmundsson, Dagný Kristjánsdóttir og Páll Baldvin Baldvinsson eru meðal þeirra sem tilnefnd eru til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2015 en tilnefningarnar voru tilkynntar á Kjarvalsstöðum í dag. Þar að auki voru kynntar þær fimm þýðingar sem tilnefndar eru til Íslensku þýðingaverðlaunanna.
Formenn dómnefndanna þriggja munu velja einn verðlaunahafa úr hverjum flokki ásamt forsetaskipuðum formanni lokadómnefndar. Íslensku bókmenntaverðlaunin 2015 verða afhent um mánaðamótin janúar-febrúar á komandi ári af forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni á Bessastöðum. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir hvern verðlaunahafa.
Hér að neðan má sjá tilnefningarnar.
Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki barna- og ungmennabóka:
Arnar Már Arngrímsson
Sölvasaga unglings
Útgefandi: Sögur útgáfa
Gunnar Theodór Eggertsson
Drauga-Dísa
Útgefandi: Vaka Helgafell
Gunnar Helgason
Mamma klikk!
Útgefandi: Mál og menning
Hildur Knútsdóttir
Vetrarfrí
Útgefandi: JPV útgáfa
Þórdís Gísladóttir
Randalín, Mundi og afturgöngurnar
Útgefandi: Bjartur
Dómnefnd skipuðu:
Hildigunnur Sverrisdóttir formaður nefndar, Árni Árnason og Sigurjón Kjartansson.
Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki fagurbókmennta:
Auður Jónsdóttir
Stóri skjálfti
Útgefandi: Mál og menning
Einar Már Guðmundsson
Hundadagar
Útgefandi: Mál og menning
Hallgrímur Helgason
Sjóveikur í München
Útgefandi: JPV útgáfa
Hermann Stefánsson
Leiðin út í heim
Útgefandi: Bókaútgáfan Sæmundur
Jón Kalman Stefánsson
Eitthvað á stærð við alheiminn
Útgefandi: Bjartur
Dómnefnd skipuðu:
Erna Guðrún Árnadóttir, formaður nefndar, Helga Ferdinandsdóttir og Knútur Hafsteinsson
Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki fræðibóka og rita almenns efnis:
Dagný Kristjánsdóttir
Bókabörn
Útgefandi: Háskólaútgáfan
Gunnar Þór Bjarnason
Þegar siðmenningin fór fjandans til - Íslendingar og stríðið mikla 1914-1918
Útgefandi: Mál og menning
Héðinn Unnsteinsson
Vertu úlfur – wargus esto
Útgefandi: JPV útgáfa
Páll Baldvin Baldvinsson
Stríðsárin 1938-1945
Útgefandi: JPV útgáfa
Smári Geirsson
Stórhvalaveiðar við Ísland til 1915
Útgefandi: Sögufélag
Dómnefnd skipuðu:
Pétur Þorsteinn Óskarsson, formaður nefndar, Aðalsteinn Ingólfsson og Hulda Proppé
Eftirfarandi þýðingar eru tilnefndar til Íslensku þýðingaverðlaunanna
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Nýsnævi – safn ljóðaþýðinga eftir 15 höfunda
Útgefandi: Dimma
Ásdís R. Magnúsdóttir
Rangan og réttan – þrjú ritgerðarsöfn eftir Albert Camus
Útgefandi: Háskólaútgáfan
Brynja Cortes Andrésdóttir
Ef að nóttu ferðalangur eftir Italo Calvino
Útgefandi: Ugla
Jón Hallur Stefánsson
Spámennirnir í Botnleysufirði eftir Kim Leine
Útgefandi: Bókaútgáfan Sæmundur
Silja Aðalsteinsdóttir
Grimmsævintýri, Philip Pullman tók saman og endursagði
Útgefandi: Mál og menning
Dómnefnd skipuðu:
Árni Matthíasson, formaður nefndar, María Rán Guðjónsdóttir og Tinna Ásgeirsdóttir