Verkfallinu aflýst

Álverið í Straumsvík.
Álverið í Straumsvík.

Boðuðu verkfalli starfsmanna álversins í Straumsvík hefur verið aflýst. Þetta staðfestir  Gylfi Ingvarsson, talsmaður starfsmanna í álveri Rio Tinto í Straumsvík, í samtali við mbl.is. Að mati samninganefndarinnar er  gagnslaust að halda verkfallinu til streitu.

„Við erum búnir að reyna það til þrautar að það er ekki hægt að semja við Rio Tinto,“ segir hann. 

„Við höfum verið í þeirri vegferð á ná samningum en ekki að loka fyrirtækinu. Við höfum aftur á móti grun um það fyrirtækið sé að nota þessa deilu til að loka fyrirtækinu. Þeir verða að gera það á sínum forsendum en ekki á forsendum kjaradeilunnar,“ segir hann ennfremur. 

Þá segir Gylfi að það hafi ítrekað komið fram í þessum viðræðum að fulltrúar Rio Tinto séu ekki á því að semja við starfsmenn, eins og samið hafi verið við aðra launþega í landinu.

„Starfsmenn Ísal eru því áfram án kjarasamnings en því er alfarið hafnað að ganga til liðs við fyrirtækið um að selja frá sér störf starfsmanna yfir í annað og lægra launa- og réttindakerfi.“

Hann segir að næstu skref séu að funda og fara yfir stöðuna með starfsmönnum. Deilan sé enn undir verkstjórn ríkissáttasemjara. Gylfi segir að stjórnendur fyrirtækisins hafi brotið allan trúnað milli starfsmanna og stjórnenda um hvernig þeir ætli að geta rekið fyrirtækið í þessu umhverfi. 

Starfsfólk upplifir sig sem leiksoppa í hagsmunatafli Rio Tinto

Samninganefndin sendi ennfremur frá sér tilkynningu vegna málsins á tólfta tímanum í kvöld. Hún er svohljóðandi:

„Samninganefnd starfsmanna í álverinu í Straumsvík hefur tekið ákvörðun um að aflýsa áður boðuðu verkfalli sem hefjast átti á miðnætti í kvöld. Kjaradeilan er áfram óleyst en ákvörðunin um að aflýsa verkfallinu er tekin þar sem sýnt þykir að raunverulegur samningsvilji sé ekki fyrir hendi hjá eiganda álversins, Rio Tinto.

Að mati samninganefndarinnar er  gagnslaust að halda verkfallinu til streitu, enda hafi ítrekað komið fram hótanir þess efnis að álverinu verði lokað og sökinni þá skellt á starfsfólkið fyrir að sækja lögbundinn rétt sinn og kjarabætur.

Krafa starfsfólksins er og hefur alltaf verið skýr. Sambærilegar launahækkanir og samið hefur verið um á almennum vinnumarkaði  og áréttað er að í engum kjarasamningum hafa starfsmenn þurft að semja frá sér störf yfir í annað og lakara launa- og réttindakerfi. 

Kjarasamningur verkalýðsfélaganna við ISAL hefur tryggt fyrirtækinu meiri vinnufrið og stöðugt og gott aðgengi að starfsfólki. Það er því starfsfólkinu þungbært að upplifa sig sem leiksoppa í hagsmunatafli Rio Tinto gegn launafólki víðsvegar um heiminn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert