Nú er farið að hvessa töluvert á suðurströndinni en mjög kröpp og djúp lægð nálgast nú landið. Lægðin fer norður yfir landið í nótt og mun þá hvessa mjög af suðaustri og suðri á Austfjörðum og Austurlandi. Búast má við roki eða ofsaveðri og talsverðri rigningu á Austfjörðum og Austurlandi undir morgun, jafnvel fárviðri úti við sjávarsíðuna.
Á korti Windyty.com má fylgjast með lægðinni nálgast landið í beinni.