Ferðamaðurinn fannst látinn

mbl.is

Erlendur ferðamaður sem leitað var á Snæfellsnesi í dag fannst látinn. Þetta kemur fram á Facebook síðu lögreglunnar á Vesturlandi.

Mannlaus bílaleigubifreið fannst við Skógarnes á Snæfellsnesi og hóf þá lögreglan á Vesturlandi eftirgrennslan. Í ljós kom að leigutaki bifreiðarinnar hafði ekki skilað sér í flug sem hann átti bókað.

Eins og fyrr segir var þá óskað var eftir aðstoð björgunarsveita og hófst leit skömmu fyrir myrkur. Maðurinn, sem er erlendur ferðamaður, fannst, látinn skömmu eftir að leit hófst. Ekkert bendir til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.

Fyrri frétt mbl.is:

Ferðamaður fundinn við Löngufjörur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert