Tekinn á 135 km hraða

mbl.is/Þórður

Lögreglan á Suðurnesjum kærði nokkra ökumenn fyrir of hraðan akstur í vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 135 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

Annar mældist á 103 kílómetra hraða, einnig á Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraði er 70 km á klukkustund. Þá ók einn án þess að hafa ökuskírteini meðferðis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert