Sara fékk eldskírnina hjá Hrafni

Sara Dögg Ásgeirsdóttir
Sara Dögg Ásgeirsdóttir Ásdís Ásgeirsdóttir

Leikkonan Sara Dögg Ásgeirsdóttir hefur haslað sér völl í sjónvarpi og kvikmyndum en hefur undanfarin ár sett framann á bið vegna barna sinna. Eftir erfiðleika er bjart framundan og verkefnin bíða í röðum; kvikmynd og ný sería af Pressunni eru handan við hornið. Umfram allt ætlar Sara Dögg að njóta hvers augnabliks.

Hún tekur á móti mér með bros á vör; hárið blautt og hrokkið eftir sturtuna. Hún segist illa ráða við lokkana en mér finnst þeir fara henni vel. Leikkonan Sara Dögg Ásgeirsdóttir er í fallegum sumarkjól með gulum blómum því þrátt fyrir að úti sé hávetur er komið vor hjá henni. Hún býður mér inn í fallega stofu og við komum okkur vel fyrir. Morgunsólin brýst fram og litar himininn bleikan en það þarf enga sól hér, það geislar af Söru þar sem hún situr á móti mér með heitt te. Það eru nefnilega þáttaskil í lífi hennar og eftir erfiðan vetur, eins og hún kallar síðustu þrjú ár, er nú loksins komið vor.

Mátaði sig inn í bíómyndir

Sara verður fertug á árinu. „Ekki samt fyrr en í desmeber!“ segir hún með áherslu. Hún er alin upp á „ættaróðalinu“ Klettum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi þar sem foreldrar hennar ráku kjúklingabú. Þar býr stórfjölskyldan enn og þangað leitar Sara gjarnan í sveitasæluna sína og hestana. Sara segist alltaf sveitastelpa þó að hún hafi dvalið mikið í borginni sem barn og sextán ára gömul hóf hún nám í Fjölbraut í Breiðholti. „Ég fór þangað vegna þess að þar var fjölmiðlabraut sem mér fannst spennandi en þar var líka hægt að taka námið á þremur árum, sem var ekki algengt þá. Ég var rosa mikið að flýta mér. Mér lá eitthvað svo á út í heim,“ segir Sara og brosir.

Hún segir að það hafi blundað í sér leikari allt frá barnæsku þó að læknisfræði hafi einnig komið til greina á tímabili. „Ég man eftir því að þegar ég var krakki og var á sviði leið mér alveg rosalega vel,“ segir Sara. „Svo kom tímabilið, táningsárin, þar sem maður fer aðeins meira inn á við og þá var ég lítið að spá í þetta. En svo aðeins seinna man ég eftir að ég fór að máta mig inn í bíómyndir og hugsa: Já, ég myndi vilja leika svona. Ég man eftir þeirri tilfinningu sem unglingur. Fá að hoppa þarna af húsþaki! Eða eitthvað svona spennandi,“ segir Sara og hlær. „Og búningadrama heillaði mig líka og gerir enn.“

Þakkar Hrafni eldskírnina

Þegar Sara var nítján ára sá hún auglýst eftir leikkonu í kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Myrkrahöfðingjann. Sara, sem þá var bæði ómenntuð og óreynd, ákvað að sækja um. Þegar til kom að mæta í fyrstu prufuna var Sara stödd í sumarbústað með vinum sínum og var að hugsa um að hætta við allt saman. Móðir hennar greip í taumanna. „Ég man að mamma sagði: Sara Dögg! Þú gerir það ekki! Þú ferð í þessa prufu!“ segir hún brosandi. „Ég fór og þetta var langt ferli. Ég þurfti að leggja alls konar á mig. Ég man þegar það var komið undir það síðasta og ég var búin að fara í margar prufur en þá var ég með svona pínu barnafitu ennþá,“ segir hún og klípur létt í kinnarnar. „Hrafn sagði, hún þarf að komast í betra form. Þannig að ég fór til einkaþjálfara í 1-2 mánuði. Hrafn þurfti að sjá að ég virkilega vildi þetta,“ segir Sara sem var tilbúin að taka því sem að höndum bæri til að hreppa hlutverkið.

„Ég las það svo seinna í gömlu viðtali við hann að fólk þyrfti að vera tilbúið að fara í ákveðna helför, til að leika í bíómynd hjá honum,“ segir hún. „Hann var ekkert að ljúga því!“ segir hún skellihlæjandi. „Þetta var allt í lagi ef maður hafði ákveðið æðruleysi til að bera. Og ég sem betur fer hafði það, og það hjálpaði mér í gegnum þetta. Fyrir mér var þetta svo spennandi heimur og ég upplifði mig svolítið sem „observer“, ég var að fylgjast með öllu.

Það var kannski til bóta að þetta var fyrsta myndin mín, ég vissi ekkert hvernig ætti að gera hlutina. Þannig að ég segi: það er ekkert í kvikmyndaheiminum sem ég held að geti komið mér á óvart eftir að hafa unnið með Hrafni Gunnlaugssyni!“ segir Sara og hlær innilega að minningunni.

Sara Dögg.
Sara Dögg.

„Ég fékk eldskírn og fyrir það þakka ég honum. Þegar það var versta veðrið var sagt, já nú skulum við fara út og taka. Það var kannski 16 stiga frost og þurfti að bræða ís til að greiða á manni hárið. Allt þetta. En á sama tíma fannst mér þetta allt gríðarlega spennandi. Af því að ég hef mjög gaman að áskorunum. Ég varð algerlega hugfangin,“ segir Sara en eftir þessa reynslu efaðist hún ekki hvaða frama hún vildi velja.

Leiklistin fékk að bíða

Að þessu loknu fór Sara í inntökuprófin fyrir leiklistina. Þegar hún var komin í 30 manna úrtak snerist henni hugur en hún var haldin sterkri útþrá. „Ég var búin að fara til Frakklands og aðeins að sjá heiminn en mér fannst ég ekki hafa lifað nóg. Mér fannst ég eiga eftir að sjá svo mikið og upplifa. Þessi útþrá kallaði aftur,“ segir hún og hringdi og sagðist hætt við umsóknina, ákvörðun sem margir skildu ekki. „Þetta var mjög sterk sannfæring, ég fylgdi innsæinu. Sem betur fer,“ segir hún sem hélt aftur til Frakklandis og „bara lifði lífinu,“ eins og hún orðar það. Síðar kom aftur þráin eftir listinni og sköpuninni en árið 2001 settist Sara á skólabekk í leiklist. „En þá var ég líka tilbúin. Ég hafði líka sótt um í Bretlandi og átti að mæta í inntökupróf þar og var á fullu í inntökuprófunum hér heima. Ég ætlaði aldrei í skólann hér heima, ég ætlaði að vera úti. En svo hitti ég konu sem sagði að ég ætti að vera í skólanum hér heima og ég fór að hugsa, getur það verið? Þannig að ég ákvað bara að prófa, þannig að ég hefði þá valið. Svo daginn sem svarið frá Leiklistarskólanum var væntanlegt var inntökupróf í skólanum í London. Svarið átti að koma 2. apríl og prófið var sama dag og ég man að ég hugsaði. Nei, ég kemst inn, ég þarf ekki að fara í þetta próf,“ segir Sara sem segist aldrei hafa efast um svarið. „Þetta eru bara töfrar. Við erum höfundar að okkar lífi. Við skrifum söguna og ráðum hvernig hún er. Ég trúi því. Ég trúi því að við getum bara gert nákvæmlega það sem við viljum,“ segir hún.

Klappað fyrir mistökum

Sara segir tímann í skólanum hafi verið einstaklega góðan. „Að fá þessa friðhelgi til að vinna og skapa, prófa sig áfram og reka sig á. Eitt námskeiðið sem er mér svo minnisstætt var trúðanámskeið. Þar gerði ég stórkostlega uppgötvun sem hefur fylgt mér síðan. Það var þannig að ef einhver gerði mistök, kom of seint eða gerði mistök í trúðareglunum, þá átti að stoppa og klappa. Það virkaði svo vel á kerfið. Það er alltaf sagt að maður eigi ekki að hika við að gera mistök, maður læri mest af þeim en maður er hræddur við að gera mistök. Þannig að þetta var rosalega heilbrigt og ný og hressandi nálgun vegna þess að fá bókstaflegt klapp fyrir að gera mistök gerði það að verkum að maður gat umfaðmað það og raunverulega fundist það í lagi. Það fannst mér algjörlega stórkostlegt! Við lærum alltaf mest þar, við stækkum mest þegar við rekum okkur á veggi og upplifum erfiðleika.“

Laumufarþegi og flugfreyjustarf

Þegar Sara var útskrifuð árið 2005 var henni boðið starf hjá Leikfélagi Akureyrar. „En þá vildi bara svo til að það var laumufarþegi, ég var ófrísk og gat ekki farið,“ segir hún og hlær. „Þá tók við annars konar sköpun. Dóttir mín var orðin eins árs þegar ég fór að leika aftur og þá með sjálfstæðum leikhópi. Svo bara tók við eitt af öðru,“ segir hún sem kom við í Borgarleikhúsinu um stund en hefur að mestu verið í sjálfstæðum verkefnum.

Sara hefur unnið í hlutastarfi sem flugfreyja hjá Flugfélagi Íslands með leiklistinni en er nú í leyfi frá því starfi. „Þau eru svo yndisleg hjá Flugfélaginu að þegar það var mikið að gera í leiklistinni var skilningur á því og þá fékk ég leyfi. Þau hafa reynst mér mjög vel,“ segir hún.

Pressan 4 í tökur á árinu

Árið 2007 fékk Sara stórt hlutverk í sjónvarpsþáttaröðinni Pressunni sem sló í gegn hjá landanum. Þar lék hún blaðakonuna Láru og fyrir þann leik hlaut hún Edduna fyrir leikkonu ársins árið 2013 en þrjár seríur hafa verið gerðar. Fyrirhugað er að gera fjórðu seríu af Pressunni og hefjast tökur síðar á árinu. „Við erum búin að gera þrjár seríur, þetta er í raun eins og níu bíómyndir!“ segir hún og að reynslan hafi verið frábær. „Ég hef mjög gaman af þessum miðli og öllu í honum, að fylgjast með öllu,“ segir Sara en vill ekki taka kvikmyndir og sjónvarpsleik endilega fram yfir sviðsleikinn.

Sara leikur aðalhlutverkið í Pressunni.
Sara leikur aðalhlutverkið í Pressunni.

„Ég vil ekki gera upp á milli, mér þykir mjög vænt um leikhúsið. Mér finnst æfingatímabilið í leikhúsinu alveg frábært. Þessar átta vikur, sirka. Þar sem farið er ofan í saumana, þessi rannsóknarvinna. Tíminn sem þú mátt prófa allt og leika þér og kryfja hlutina til mergjar. Mér finnst gaman að skoða hlutina djúpt. Þannig að ég myndi alltaf vera til í það. Þetta er bara öðruvísi unnið í bíó. Hraðinn hentar mér vel þar og þar eru líka meiri líkur á að vinna utandyra,“ segir hún.

Sviðsleik fylgir sú áskorun að standa á sviði kvöld eftir kvöld og leika sama hlutverk. „Þar er áskorunin, að gera þetta alltaf eins og í fyrsta sinn. Það er ekkert auðvelt. En hver vill hafa hlutina auðvelda.“

„Ég ætla að leika í þessari mynd“

Fleira spennandi er á döfinni hjá Söru á þessu ári. „Núna er ég að fara að leika lögreglukonu hjá Óskari Þór (Axelssyni) í mynd Yrsu, Ég man þig. Og mér finnst svo spennandi að fá afsökun til fylgjast með vinnu lögreglu,“ segir Sara sem er nú að kynna sér störf lögreglunnar til að fá innsýn í starfið. Hún fer svo vestur á Ísafjörð í mars í tökur. „Ég las bókina þegar hún kom út og þurfti að vera viss um að vera ekki ein heima þegar ég las hana. Langt síðan ég hafði lesið svoleiðis bók, hún kom við mann. Ég man að ég hugsaði: já, ég ætla að leika í þessari bíómynd,“ segir Sara en þá var ekki kominn neinn kvikmyndaréttur að bókinni. „Það voru aftur smátöfrar,“ segir Sara með blik í brúnu augunum. „Ég hef góða tilfinningu fyrir þessu,“ segir hún en hlutverkið í myndinni er stórt. „Ég fór í prufur og var í hestaferð að læra textann á kvöldin þegar ég var búin að taka hnakkinn af,“ segir hún og hlær.

Frægðin ekki eftirsóknarverð

Þegar Sara er spurð um draumahlutverkið stendur ekki á svarinu. Hún segist vera þakklát fyrir hvert hlutverk, stór sem smá, og í þeim skilningi eru þau öll draumahlutverk sem hafa leitt hana á þann stað sem hún er nú á. En eitt hlutverk væri hún til í að leika og þá í sjónvarpsþáttum eða kvikmynd. „Ég er með eitt á heilanum og hef verið með í mörg ár. Mig hefur alltaf langað að leika Karítas í Karítas án titils sem Kristín Marja (Baldursdóttir) skrifaði. Þessa konu vil ég leika, hún er merkilegur karakter fullur af togstreitu. Saga íslenskra kvenna býr í henni.“

Sara segir að hana dreymi ekki um frægð. „Það hefur aldrei heillað mig, ég er aðeins of prívat manneskja fyrir slíkt en ég segi það ekki að ég myndi ekki leika í bíómynd í útlöndum. Ég væri svo sannarlega til í að prófa það. Og bara að fá áskoranir, hvort sem það er á Íslandi eða erlendis. Ég tek því fagnandi,“ segir hún og segist ekki eiga neina leynda drauma um frægðina. „Við vitum hvað hún er fallvölt frægðin.“

Leikkona ársins í Suður-Kóreu

Sara segir að það hafi verið mjög skemmtilegt að fá Edduna 2013 fyrir bestu leikkonu ársins í hlutverki Láru í Pressunni en bendir á að áður hafi hún einnig fengið verðlaun, og það í Suður-Kóreu. Þar fékk hún verðlaun fyrir bestu leikkonu í erlendri mynd fyrir hlutverk sitt í Myrkrahöfðingjanum. „Það var mjög súrrealískt og algjört ævintýri, ég fór þangað með Hrafni,“ segir hún. „Þetta var stórkostleg skemmtun,“ segir Sara og getur varla hætt að hlæja að minningunni. „Að standa þarna rúmlega tvítug á sviðinu í Suður-Kóreu var súrrealískt. Svo hvíslaði ég að framkvæmdastjóra hátíðarinnar þegar hann kom og óskaði mér til hamingju að ég væri ekki lærð leikkona og hann bara sussaði á mig og bað mig um að segja ekki nokkrum manni frá þessu,“ segir Sara.

Sara Dögg Ásgeirsdóttir
Sara Dögg Ásgeirsdóttir Ásdís Ásgeirsdóttir

„Ég fékk rosa fína gullstyttu þar. En með Edduna, það var yndislegt. Með allt svona, það er eins og lífið sjái um að halda mér alltaf á jörðinni. Þegar ég fékk Edduna var ég nýbúin að eignast strákinn minn og var með hann fimm daga gamlan á brjósti og fór ekki á hátíðina en Óskar (Jónasson) tók við verðlaununum fyrir mína hönd. Ég heyrði ekki einu sinni þakkarræðuna því sonurinn grét svo mikið! Ég var búin að senda Óskari hvað hann ætti að segja, á slitróttu sms-i, en svo heyrði ég ekkert! En þá hugsaði ég bara, hér er lífið, hér og nú. Þú lætur þetta ekkert stíga þér til höfuðs,“ segist hún hafa hugsað. „En auðvitað er gott að fá klapp á bakið og hvatningu en maður þarf líka að vera sinn eigin áttaviti og njóta þess þegar maður gerir vel. Helsta viðurkenningin og harðasta gagnrýnin kemur innan frá.“

Langur vetur að baki

Þegar sonur hennar var fimm mánaða veiktist dóttir hennar og hefur þurft á langri og strangri spítalameðferð að halda sem nú er lokið.

„Ég er búin að vera núna heima síðustu þrjú árin með lítið barn og veikt barn þannig að við erum að koma undan löngum vetri, getum við sagt. Nú erum við búin að klára það,“ segir Sara og er nú tilbúin fyrir leiklistina á ný. „Ég er búin að vera frá listinni í þrjú ár. En það er bara þannig að þegar maður finnur svona sterkt fyrir lífinu, þá finnur maður svo sterkt fyrir sköpuninni. Maður sér það fyrst og fremst í augum barnanna sinna. Maður fyllist auðmýkt og þakklæti fyrir að lífið hafi sigrað,“ segir hún.

Sara segir að þessi reynsla hafi breytt sér. „Maður endurmetur hvað það er sem skiptir máli. Og þá hefur maður engan tíma til að eyða í leiðindi. Við viljum njóta lífsins og svo sér maður betur fegurðina í hinu smáa. Í hversdagsleikanum. Fortíðin er búin, framtíðin ekki komin og það eina sem við höfum er augnablikið og það fer maður að læra að meta betur. Ég hélt alveg að ég kynni að meta það en það breyttist. Þó að hér sé snjór yfir öllu erum við samt með vor í hjarta,“ segir hún. „Það er allt á uppleið. Þetta var stóra verkefnið. Ég vona að maður fái ekki fleiri svona.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert