Tveir bílar skullu harkalega saman á Aðalgötu á Sauðárkróki um tvöleytið í dag. Ökumaður annars bílsins slasaðist lítillega og var hann fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri.
Bíllinn sem hann ók er talinn ónýtur.
Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki er maðurinn sem slasaðist um tvítugt.