Miklar tafir eru á umferð um Ártúnsbrekkuna í vesturátt vegna fjögurra bíla árekstrar neðst í brekkunni.
Samkvæmt upplýsingum frá Árekstri.is er verið að fjarlægja tvo af bílunum með kranabílum en þeir eru mjög illa farnir og óökufærir. Enginn slasaðist í árekstrinum en það getur tekið einhverja stund að greiða úr umferðarhnútnum sem skapaðist á háannatíma í morgunumferðinni.