Eldur kviknaði í potti

Tilkynning barst um klukkan hálf tólf í kvöld um eld í íbúðarhúsi við Eiðisgranda á Seltjarnarnesi og var allt tiltækt slökkvilið frá fjórum stöðvum sent á staðinn. Þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn kom í ljós að kviknað hafði í potti á eldavél og höfðu húsráðendur náð að slökkva eldinn. 

Slökkviliðið reykræsti íbúðina í kjölfarið en mestum hluta liðsins var snúið við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert