Hálka er á Sandskeiði og í Þrengslum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en þæfingsfærð og skafrenningur er á Hellisheiði. Á Suðurlandi er hálka eða snjóþekja á vegum.
Á Vesturlandi er hálka, hálkublettir og sumstaðar snjóþekja. Hálka er á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði. Lokað er um Fróðárheiði.
Margar leiðir á Vestfjörðum eru enn ófærar. Þæfingsfærð er á Þröskuldum en unnið er að hreinsun. Einnig er unnið að hreinsun á Hálfdán og Mikladal. Á vegi 60 eru umferð vísað um vetrarveg við Bæjardalsá og Geiradalsá.
Á Norðurlandi vestra er snjóþekja eða hálka. Unnið er að opnun á Siglufjarðarvegi en þar er komin þæfingsfærð. Á Norðausturlandi er hálka eða snjóþekja víðast hvar og sumstaðar skafrenningur.
Austanlands er mestmegnis hálka og einnig með ströndinni suður úr en snjóþekja og éljagangur er þó í Stöðvarfirði og Kambaskriðum.