Ófært yfir Þröskulda og Klettsháls

mbl.is/Styrmir Kári

Hálka og skafrenningur er á Sandskeiði, Hellisheiði og Þrengslum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni og hálka eða snjóþekja á öðrum vegum á Suðurlandi.

Vestanlands er hálka eða snjóþekja víðast hvar en þó er þungfært og skafrenningur á Bröttubrekku. Flughálka og skafrenningur er á Útnesvegi og vegurinn yfir Fróðárheiði er lokaður.

Þæfingsfærð og skafrenningur er víða á fjallvegum á Vestfjörðum en þó er orðið ófært yfir Þröskulda og Klettsháls. Þá er þungfært og skafrenningur á Kleifaheiði en hálka eða snjóþekja á flestum öðrum leiðum. Umferð um veg 60 er vísað um vetrarveg við Bæjardalsá og Geiradalsá.

Hálka eða snjóþekja er á vegum á Norðurlandi en ófært á Dettifossvegi. Austanlands er víðast hvar hálka og snjóþekja en einnig er hálka með suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert