Flughálka vestan Hafnar

mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Hálka og skafrenningur er á Sandskeiði og Hellisheiði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni og hálka á flestum öðrum vegum á Suðurlandi.

Vestanlands og á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á vegum og skafrenningur á flestum fjallvegum. Þæfingsfærð er á Fellsströnd og Skarðsströnd og einnig á kafla á Innstrandavegi. Á vegi 60 er umferð vísað um vetrarveg við Bæjardalsá og Geiradalsá.

Hálka eða snjóþekja er á vegum á Norðurlandi og einhver éljagangur austan Eyjafjarðar.

Hálka er einnig á vegum á Austurlandi og éljagangur á stöku stað. Þá er að sama skapi hálka með suðausturströndinni. Flughálka er vestan Hafnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert