Hótað þegar hún sótti börnin

Maður lét ófriðlega á sambýli á Höfn.
Maður lét ófriðlega á sambýli á Höfn. mbl.is/Golli

Síðastliðið föstudagskvöld barst lögreglunni á Suðurlandi beiðni um aðstoð frá sambýli á Höfn þar sem heimilismaður lét ófriðlega. Maðurinn braut upp hurð og sýndi ógnandi framkomu gagnvart heimilisfólki. Var maðurinn handtekinn í kjölfarið og færður af heimilinu.

Þá fór kona á Hellu fram á nálgunarbann gagnvart fyrrverandi sambýlismanni sínum og barnsföður. Konan hafði samband við lögreglu og sagði manninn hafa hótað sér lífláti þegar hún kom að sækja börn þeirra á heimili hans. Ekki er búið að yfirheyra manninn vegna málsins þar sem ekki hefur náðst í hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert