Rjómi og súkkulaði út um allt!

Yngsta kynslóðin hefur beðið bolludagsins með mikilli eftirvæntingu og þau voru sátt við sinn hlut krakkarnir á Leikskólanum Rauðhól í Norðlingaholti í dag þegar bollurnar voru bornar á borð. Hver hafði sitt lag við að torga bollunum, rjómanum og súkkulaðinu eins og myndskeiðið sem fylgir sýnir vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert