Rúmlega fjórðungur í sérkennslu

Mynd úr safni af skólabörnum
Mynd úr safni af skólabörnum mbl.is/Eggert

Skólaárið 2014-2015 fengu 12.263 nemendur grunnskólans sérkennslu eða stuðning, eða 28,4% allra nemenda. Það er fjölgun um 60 nemendur frá fyrra skólaári. Fjöldinn hefur ekki verið meiri frá því að Hagstofan hóf innsöfnun um sérkennslu skólaárið 2004-2005 en hlutfall nemenda sem fengu sérkennslu var lítið eitt hærra skólaárið 2013-2014, 28,6%.

Af þeim nemendum sem fengu stuðning voru 61,5% drengir og 38,5% stúlkur. Nemendum sem hafa erlent móðurmál og fá stuðning vegna íslenskunáms hefur fjölgað um 64,6% á undanförnum fimm árum og voru 2.374 skólaárið 2014-2015, um 900 færri en nemendur með erlent móðurmál. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands.

49.054 kennslustundir á viku í sérkennslu

Skólaárið 2014-2015 var 49.054 kennslustundum á viku varið til sérkennslu og stuðnings í grunnskólum landsins og hafa ekki verið fleiri síðan Hagstofan hóf að safna þessum upplýsingum skólaárið 2004-2005. Þar af voru 18.586 kennslustundir sérkennara (37,9%) og 30.468 kennslustundir stuðningsfulltrúa (62,1%). Hlutfall kennslu sérkennara hefur farið lækkandi undanfarin ár, en það var hæst skólaárið 2004-2005, eða 43,6%.

Grunnskólanemendum sem læra erlend tungumál fjölgar ár frá ári og eru fleiri yngri nemendur að læra erlend tungumál. Skólaárið 2014-2015 lærðu 81,5% grunnskólanema erlent tungumál og hafa ekki verið fleiri síðan gagnasöfnun hófst skólaárið 1999-2000.

Enska er fyrsta erlenda tungumálið í grunnskólum og það tungumál sem flestir nemendur læra. Skólaárið 2014-2015 lærðu 35.388 börn ensku í grunnskólum, 82,0% nemenda, sem er fjölgun um 1,1 prósentustig frá fyrra skólaári. Kennsla í ensku hefst oftast í 4. bekk en þó er enska kennd í 1.-3. bekk í mörgum skólum. Síðastliðið skólaár lærðu 6.282 börn í 1.-3. bekk ensku eða tæplega helmingur barna í þessum aldurshópi (46,4%), samanborið við 506 börn (4,0% nemenda) fyrir áratug.

Flestir hefja dönskunám í 7. bekk

Nemendur hefja nú flestir dönskunám í 7. bekk, 12 ára. Vert er að geta þess að 1.559 nemendur í 1.-6. bekk lærðu dönsku skólaárið 2014-2015 (5,9%) en voru 1.102 árið á undan (4,3%). Ekki er verið að auka dönskukennslu heldur dreifa henni á fleiri árganga.

Í mörgum skólum geta nemendur sem hafa kunnáttu í norsku eða sænsku valið þau tungumál í stað dönsku. Á síðasta skólaári lærðu 118 börn sænsku frekar en dönsku og 79 börn norsku. Fjöldi nemenda í norsku og sænsku hefur lítið breyst undanfarin ár.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert