Maðurinn kominn úr öndunarvél

Maðurinn dvelur á Landspítalanum.
Maðurinn dvelur á Landspítalanum. mbl.is/Ómar

Maðurinn sem slasaðist alvarlega í Skarðsdal á laugardag er kominn úr öndunarvél samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Rann hann um hundrað metra niður hlíð en hann var í um 700 metra hæð þegar slysið átti sér stað. 

Fólkið var í fjall­göngu ásamt fleir­um. Kon­an slasaðist nokkuð og er hún meðal ann­ars með brotna hryggj­arliði, brákað rif­bein, skurð og mör. 

Aðstæður á slysstað voru erfiðar en greiðlega gekk fyr­ir áhöfn þyrlunn­ar að búa um hina slösuðu og flytja þá um borð í þyrluna,“ sagði í til­kynn­ingu frá Land­helg­is­gæsl­unni um slysið.

Frétt mbl.is: Maðurinn er alvarlega slasaður

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert