Styttist í Iceland Winter Games

Frá Iceland Wintre Games.
Frá Iceland Wintre Games.

Vetur konungur er svo sannarlega mættur til Akureyrar og allar brekkur og fjöll á Norðurlandi þaktar snjó. Það gleður fáa jafn mikið og skipuleggjendur stærstu vetraríþróttahátíðar landsins, Iceland Winter Games (IWG), sem verður haldin dagana 24. mars – 3. apríl og er undirbúningur fyrir hátíðina vel á veg kominn eins og segir í tilkynningu.

Meðal þeirra sem hafa skráð sig til þátttöku á IWG 2016 eru nokkrir af þekktustu og sigursælustu skíða- og snjóbrettamönnum heims. Má þar t.d. nefna hinn 24 ára gamla Svía Henrik Harlut, en hann var valinn skíðamaður ársins árin 2011 og 2013 (Freeskier Magazine) og besti skíðamaður Evrópu árið 2012 (International Freeski Film Festival). Hann hefur auk þess tvisvar sigrað stærsta skíða- og snjóbrettamóti heims, X-Games í Aspen (2013 og 2014), unnið European Open 2009 og keppt fyrir hönd Svía á Ólympíuleikunum í Sochi svo eitthvað sé nefnt.

Aðrir þekktir atvinnumenn á skíðum og snjóbrettum sem hafa skráð sig til þátttöku á IWG 2016 eru t.a.m. hinn finnski Antti Autti, kanadíski Phil Casabon og Bandaríkjamaðurinn Scotty Lago sem á glæstan feril að baki. Hann hlaut brons verðlaun á Ólympíuleikunum í Sochi, hann hefur unnið 4 sinnum til verðlauna á X – Games í Aspen, og verið atvinnumaður á snjóbrettum frá 12 ára aldri.

Aðalviðburðir hátíðarinnar eru AFP heimsmeistaramót í Freeski, alþjóðlega IWG Open snjóbrettamótið og fyrsta Íslandsmeistaramótið á snjóbrettum. Þessir viðburðir eru haldnir í Hlíðarfjalli dagana 31. mars – 2. apríl. 

Heimsmeistaramótið í Freeski fór fyrst fram á IWG í mars 2014 og markaði sú keppni upphafið að Iceland Winter Games. Freeski heimsmeistaramótið er hluti af AFP mótaröðinni (The  AFP World Tour) og er flokkað sem gullmót, en það er er næst efsta stig í þeirri mótaröð með heildarverðlaunafé upp á tæpar 3 milljónir króna.

Scotty Lago
Scotty Lago
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert