Hefði getað farið verr

Lögreglan á Suðurnesjum segir mikla mildi að ekki fór verr þegar bifreið með fimm ungmenni innanborðs valt í gærdag á Vatnsleysustrandarvegi. Þegar lögregla kom á vettvang voru ökumaður og farþegar komnir út og töldu sig hafa sloppið án meiðsla.

Öll kváðust ungmennin hafa verið í bílbelti en engu að síður var ákveðið að flytja þau á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til nánari skoðunar. Hálka er talin hafa valdið slysinu en dráttarbifreið var fengin til að fjarlægja bifreiðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert