Bílamergðin við þolmörkin

Breiður af bílaleigubílum voru við völlinn sl. sumar.
Breiður af bílaleigubílum voru við völlinn sl. sumar. mbl.is/Baldur Arnarson

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir að bregðast þurfi við mikilli fjölgun bílaleigubíla í bænum. Víða í bænum sé ástandið að nálgast þolmörk.

Er þetta eitt af mörgum dæmum um hvernig væntanleg fjölgun erlendra ferðamanna um nokkur hundruð þúsund í ár mun reyna á innviði landsins.

Samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu eru skráðar 32 bílaleigur í Reykjanesbæ, ein í Sandgerði, 15 í Hafnarfirði og fjórar í Garðabæ. Alls eru þetta 52 bílaleigur í Reykjanesbæ og nálægum sveitarfélögum. Hefur Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, áætlað að um 18 þúsund bílaleigubílar verði í umferð í ár, að því er fram kemur í umfjöllun um þessa vaxtarverki ferðaþjónustunnar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert