Blaðamannaklúbburinn vaknar á ný

Héðan frá turnherberginu fengu stólar að fjúka fyrir hálfri öld.
Héðan frá turnherberginu fengu stólar að fjúka fyrir hálfri öld. mbl.is/Ómar

Við formlega opnun nýs salar í húsakynnum Blaðamannafélags Íslands í síðustu viku var salnum gefið nafnið Blaðamannaklúbburinn, en nafnið vísar til samkomustaðar blaðamanna í turnherbergi á Hótel Borg í upphafi sjöunda áratugarins, sem kallaður var Blaðamannaklúbburinn.

Í frétt sem birtist í Morgunblaðinu á bls. 2, þann 20. júlí 1962 kom fram að Pétur Daníelsson, hótelhaldari á Hótel Borg, hefði látið Blaðamannafélaginu í té húsnæði í turnherberginu, þar sem félagsmenn og gestir þeirra, auk blaðafulltrúa erlendra sendiráða gátu komið saman til fundar, skrafs og ráðagerða einu sinni í viku, á föstudagskvöldum.

Glas af einhverju

Orðrétt sagði m.a. í fréttinni: „Framvegis er þó ætlunin að opna fyrr eða síðdegis og geta blaðamenn þá komið hvenær sem er eftir þann tíma, og fram til kl. 1, og gengið sér brauðsneið og kaffi eða glas af einhverju.“

Fríða Björnsdóttir, blaðamaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands í áratugi, er handhafi blaðamannaskírteinis númer 6. Hún gerðist blaðamaður á Tímanum 17. janúar 1962.

Það kom í hlut Fríðu á föstudagskvöldið í síðustu viku, þegar nýja salnum var gefið nafn um leið og níu félagar í BÍ voru heiðraðir með gullmerki félagins fyrir 40 ára starf, að greina frá því hvaða nafn hefði verið valið: Blaðamannaklúbburinn.

„Sumarið 1962, þegar ákveðið var að stofna Blaðamannaklúbb Íslands, fengum við lánað turnherbergið á Hótel Borg einu sinni í viku. Ég var þá nýbyrjuð í Blaðamannafélaginu, kornungur blaðamaðurinn,“ sagði Fríða í samtali við Morgunblaðið í gær.

Hún segir að við það tækifæri hafi félagið látið útbúa skjöld sem á stóð Blaðamannaklúbburinn, Icelandic Pressclub, og hann hafi verið festur upp á vegg í turnherberginu. „Við komum þarna saman vikulega. Turnherbergið var nú ekki jafnstórt og flott og það er í dag, enda búið að bæta við hæð, þannig að það var oft þröngt um manninn.

Klúbburinn lifði ekki lengi, því ef ég man þetta rétt, þá var okkur úthýst af Borginni einhvern tíma síðla árs 1963, fyrir einhverjar óspektir, sem ekki samrýmdust hefðbundnum hótelrekstri. Drykkjan á þessum samkundum var ekki lítil, svo ekki sé sterkar að orði kveðið. Þar með var því ævintýri lokið,“ segir Fríða og hlær við.

Á föstudagskvöldið kom fram í máli eins ræðumanns, sem man tímana tvenna í blaðamennskunni, því hann er næstum því með jafn langan starfsaldur og Fríða, að lokahnykkurinn á því að BÍ missti þessa fundaraðstöðu sína í turnherberginu á Hótel Borg, var sá að „fundargestir“ luku einu föstudagskvöldinu með því að fara út á svalir turnherbergis Hótel Borgar og henda niður á Pósthússtræti stólunum úr herberginu!

Hún segir að hún hafi sett skiltið góða innan á hurðarkarminn í höfuðstöðvum Blaðamannafélagsins, fljótlega eftir að hún tók við sem framkvæmdastjóri, til þess eins að gæta þess að það glataðist ekki.

Svo þegar ráðist hafi verið í ýmiss konar endurbætur á húsakynnunum, skipt um hurðir og karma, hafi skiltið verið tekið niður.

Þegar búið hafi verið að velja salnum nýtt nafn, hafi Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands, rifjað upp tilvist skiltisins, sem geymt var í einhverri skúffunni.

Skilaði sannarlega góðu búi

„Ég sagði á fundinum: gott, það þarf þá alla vega ekki að eyða í nýtt skilti, sem hæfir mínum hugsanagangi afar vel!“ segir Fríða, sem í öllum sínum störfum fyrir BÍ hefur alltaf þótt einstaklega hagsýn og sparsöm fyrir hönd félagsins, jafnvel svo að sumum hefur þótt nóg um. Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands, fór sérstaklega fögrum orðum um Fríðu og hversu hagsýn hún hefði verið í rekstri BÍ í tæp tuttugu ár. „Hún skilaði svo sannarlega góðu búi til okkar félaganna í Blaðamannafélagi Íslands,“ sagði formaðurinn m.a.

Skjöldur Blaðamannaklúbbsins var gerður 1962.
Skjöldur Blaðamannaklúbbsins var gerður 1962. mbl.is/Árni Sæberg
Fríða Björnsdóttir blaðamaður.
Fríða Björnsdóttir blaðamaður. mbl.is/Árni Sæberg
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert