Flogið lengra en til sólarinnar

Samanlagt flug um íslenska flugstjórnarsvæðið lengra en til sólarinnar.
Samanlagt flug um íslenska flugstjórnarsvæðið lengra en til sólarinnar. AFP

Árið 2015 flugu 145.891 flugvél 209.454.134 kílómetra um íslenska flugstjórnarsvæðið. Vegalengdin er 1,4 AU, en 1 AU, stjarnfræðieining, er fjarlægðin frá jörðinni til sólarinnar. Þessar flugtölur og fleiri er að finna í ítarlegri greiningu Isavia á umferð ársins um flugvelli landsins og íslenska flugstjórnarsvæðið og birt er á vef Isavia.

Á árinu sem leið fjölgaði millilandafarþegum um flugvelli Isavia um 25,5% miðað við árið 2014 en innanlandsfarþegum fjölgaði um 2,5% sama tímabili. Farþegafjöldi á Keflavíkurflugvelli var alls 4.858.776 sem er 25,5% aukning frá fyrra ári, eða einni milljón fleiri farþegar. Umfang vöru- og póstflutninga jókst um 2,4% innanlands en jókst um 4% milli landa.

11,5% meiri umferð en 2014

Alls fór 145.891 flugvél um íslenska flugstjórnarsvæðið á árinu 2015 eða 11,5% fleiri en árið áður. Flognir kílómetrar jukust um sama hlutfall. Um 64% umferðarinnar var á vesturleið og 36% á austurleið sem stafar af ríkjandi vindáttum á svæðinu. Mikill hluti þessarar umferðar er á milli Evrópu og Norður-Ameríku, en um íslenska svæðið fer um 25% þeirrar flugumferðar.

Algengasta leiðin innan flugstjórnarsvæðisins var sem fyrr frá London til Los Angeles en 2.581 ferðir voru farnar þá leið á árinu. 2.232 ferðir voru farnar frá London til Keflavíkur og 2.186 frá Keflavík til London.

Þau sjö flugfélög sem flugu oftast um íslenska svæðið eru Icelandair, United Airlines, Delta, Emirates, Lufthansa, British Airways og SAS.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert