Maðurinn enn ófundinn

Stúlkurnar voru að leik á lóð skólans. Myndin tengist fréttinni …
Stúlkurnar voru að leik á lóð skólans. Myndin tengist fréttinni ekki beint. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki haft upp á karlmanni sem beraði fyrir þremur stúlkum í fjórða bekk í Háteigsskóla 4. febrúar sl. Málið er enn í rannsókn og hvetur lögregla almenning til að hafa samband búi einhver yfir upplýsingum vegna málsins.

Stúlkurnar voru að leik í á lóð skólans í frímínútum fyrir hádegi. Þær fóru á bak við eitt húsið á skólalóðinni þegar maðurinn gekk að girðingu og kallaði til þeirra. Skólastjóri skólans sagði í samtali við mbl.is að stúlkurnar hefðu brugðist hárrétt við með því að hafa þegar í stað samband við starfsmann skólans. 

Rætt hefur verið við nokkra menn vegna málsins. Stúlkurnar gátu gefið greinargóða lýsingu á manninum.

Frétt mbl.is: Málið í Háteigsskóla óupplýst

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert