Tvö umferðarslys urðu á Suðurlandi nú skömmu fyrir hádegi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu átti annað þeirra sér stað við Kirkjubæjarklaustur. Hitt slysið varð skammt frá Vík í Mýrdal.
Ekki fást nánari upplýsingar að sinni um hvernig slysin bar að eða hversu alvarleg þau voru.