Óvenjulágt óson yfir Íslandi

Sólgleraugu og sólarvörn er dagsskipun Veðurstofu Íslands.
Sólgleraugu og sólarvörn er dagsskipun Veðurstofu Íslands. mbl.is/Styrmir Kári

Óvenjulágt óson mælist nú yfir Íslandi og er spáð lágu ósoni yfir helgina og víða sólbjörtu veðri.

Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Þar segir ennfremur, að ef útvistarfólk sé um lengri tíma í sól, þar sem snjór hylji einnig jörðu, sé rík ástæða til að verja sig gegn geislum sólar, t.d. með því að nota sólgleraugu og sólarvörn

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert