Skemmdi hurðir á Hlemmtorgi

Á fimmta tímanum í dag var tilkynnt um pilt sem gekk um og skemmdi hurðir á Hlemmtorgi í Reykjavík. Þegar lögreglan kom á staðinn reyndi maðurinn undankomu en var fljótlega handsamaður af lögreglu. 

Var maðurinn ölvaður eða í vímuástandi og sýndi mótþróa við handtöku. Var hann kærður fyrir eignaspjöll, vörslu vímuefna og að sýna mótþróa við handtöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert