Umferðaslys á Suðurlandsvegi

mbl.is/Þórður

Um áttaleytið í kvöld varð umferðaslys á Suðurlandsvegi, rétt ofan við Lögbergsbrekku, þegar tveir bílar skullu saman. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var einn fluttur á sjúkrahús en meiðsli hans eru talin minniháttar.

Bílarnir voru að koma úr sitt hvorri áttinni þegar þeir skullu saman, en dælubílar voru sendir af stað þar sem fyrst var talið að beita þurfti klippum til að ná einstakling úr öðrum bílnum. Svo reyndist þó ekki vera.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert