Hviður geta farið upp í 50 metra á sekúndu

Gera má ráð fyrir að blint verði á fjallvegum á …
Gera má ráð fyrir að blint verði á fjallvegum á morgun, en á norðvesturlandi er gert ráð fyrir allt að 40-50 metrum á sekúndu. Ljósmynd/Björgvin Páll Hauksson

Hviður geta farið upp í allt að 50 metra á sekúndu á morgun í Skagafirði og Eyjafirði og meðalvindur verið á bilinu 30-40 metrar á sekúndu. Gert er ráð fyrir að mikill skafrenningur og blint verði á fjallvegum, sérstaklega norðvestan til. Þetta kemur fram hjá Vegagerðinni. 

Í kvöld snjóar á fjallvegunum og slydda og bleytusnjór á láglendi. Hvasst verður sunnan og austanlands fram á nótt, en lægðarmiðjunni er spáð norður yfir vestanvert landið seint í kvöld. Hún dýpkar meira, en áður var spáð. Suðvestan- og vestanáttin verður því harðari í kjölfar hennar. Snemma í fyrramálið 20-25 m/s og með éljum og hita nærri frostmarki á láglendi.

Það er þæfingur og skafrenningur í Þrengslum og snjóþekja og skafrenningur á Sandskeiði og Hellisheiði. Hálka eða hálkublettir eru nokkuð víða á Suðurlandi en flughálka er sumstaðar á útvegum.

Á Vesturlandi eru hálkublettir á Bröttubrekku. Hálkublettir eða hálka er á Snæfellsnesi og sumstaðar éljagangur.

Hálka er víðast hvar á Vestfjörðum en þæfingsfærð, snjóþekja og éljagangur víða á fjallvegum.

Á Norðurlandi er hálka eða hálkublettir og skafrenningur. Snjóþekja og éljagangur er á Öxnadalsheiði. Hálka, snjóþekja og óveður er á Víkurskarði, Mývatnsheiði, Hólasandi og Mývatns- og Möðrudalsöræfum.

Áframhaldandi hálka er á Austur- og Suðausturlandi. Snjóþekja, þæfingsfærð, hálka og óveður er víða á fjallvegum t.a.m. á Vatnsskarði eystra og Fagradal. Ófært er á Fjarðarheiði en lokað er á Oddsskarði. Flughált er á köflum milli Hafnar og Öræfa og sumstaðar óveður með suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert