Mikil aukning í líffæragjöf

Líffæragjöf getur bjargað mannslífum. Mynd úr safni.
Líffæragjöf getur bjargað mannslífum. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert

Alls voru í fyrra gefin líffæri í 371 skipti í Evrópu í tengslum við dauðsföll og er það metfjöldi samkvæmt upplýsingum Sahlgrenska-sjúkrahússins í Svíþjóð, en þangað fara flestir sjúklingar sem þurfa á líffæraígræðslu að halda og eru sjúkratryggðir á Íslandi.

Segir frá þessu á vef Sjúkratrygginga Íslands.

Líffæragjöfum hefur fjölgað umtalsvert og er mesta aukningin hér á landi.

„Á árinu 2015 voru líffæragjafarnir 12 á Íslandi. Þetta þýðir 36,4 líffæragjafa á milljón íbúa sem setur Ísland á toppinn yfir líffæragjafa í Evrópu. Án efa er þetta að þakka mikilli vitundarvakningu sem orðið hefur meðal almennings og starfsmanna heilbrigðisþjónustunnar. Í hvert skipti sem líffæri eru gefin er mögulega hægt að bjarga nokkrum mannslífum,“ segir á vef Sjúkratrygginga.

„Á árinu 2015 fengu 13 sjúkratryggðir einstaklingar ígrætt líffæri en þeir sem höfðu verið lengst á biðlista voru búnir að bíða frá árinu 2010. Útgjöld Sjúkratrygginga Íslands vegna líffæraígræðslna á árinu 2015 voru ríflega 223 millj. kr. en ef ferða- og uppihaldskostnaður er tekinn með námu útgjöldin um 272 millj. kr.“

Nánar má fræðast um þetta á vef Sjúkratrygginga Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert