Lögreglan stöðvaði för ökumanns í Hafnarfirði skömmu eftir miðnætti í nótt en grunur leikur á að ökumaðurinn hafi verið undir áhrifum áfengis.
Skömmu fyrir eitt í nótt hafði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu afskipti af manni vegna fíkniefna í Ingólfsstræti.
Annars var mikið um tilkynningar vegna óveðurs á höfuðborgarsvæðinu og eins er unnið að rannsókn á eldsvoða í Krummahólum en eldsupptök eru enn ókunn.