Það er greiðfært á Suður- og Vesturlandi en þoka á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði.
Vegir á Vestfjörðum eru greiðfærir á láglendi en það er hálka á Dynjandisheiði og hálkublettir á Hrafnseyrarheiði og Steingrímsfjarðarheiði.
Á Norðurlandi vestra er víðast autt en á Norðausturlandi eru hálkublettir á nokkrum leiðum, einkum á fjallvegum.
Vegir á Austurlandi eru greiðfærir á láglendi en hálka eða hálkublettir á fjallvegum