Líkamsárás á Stórhöfða

löggumyndir löggumynd lögreglan lögreglubíll 112
löggumyndir löggumynd lögreglan lögreglubíll 112 mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

 Ráðist var á ungan mann við veitingahús á Stórhöfða í Reykjavík í nótt. Lögreglan fékk tilkynningu um málið um kl. 2.40. Manninum ekið á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar. Ekki er vitað um meiðsl hans að svo stöddu.

Um kl. hálf þrjú í nótt var ungur maður handtekinn í Hafnarfirði grunaður um eignaspjöll.  Maðurinn var vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn málsins.

Rétt fyrir kl. 5 í nótt barst svo lögreglunni tilkynning um innbrot í félagsaðstöðu við Nauthólsveg. Ekki er vitað hverju var stolið, að sögn lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert