Laust eftir klukkan hálf sex í morgun var lögreglan á Norðurlandi eystra kölluð til vegna tilkynningar um heimilisofbeldi í húsi á Akureyri. Sá sem tilkynnti um málið skýrði frá því að meintur gerandi hótaði að beita skotvopni.
Í kjölfarið lokaði lögreglan þremur götum í nágrenninu og vopnuðust vakthafandi lögreglumenn lögreglunnar á Akureyri skotvopnum. Gerðar voru viðeigandi ráðstafanir og sérsveit Ríkislögreglustjóra var kölluð út.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri hleypti meintur gerandi ekki af skotvopni og kom vopnlaus út úr íbúðinni skömmu eftir að þessar aðgerðir hófust og var hann þá handtekinn.
Við leit í íbúðinni fundust tvær haglabyssur og nokkurt magn skotfæra. Viðkomandi var undir áhrifum áfengis, hann var vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður seinna í dag.
Samkvæmt lögreglu er rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri nú með málið til rannsóknar