Karen María tekur við af Drífu

Karen María Jónsdóttir er nýr deildarstjóri Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna hjá Höfuðborgarstofu.
Karen María Jónsdóttir er nýr deildarstjóri Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna hjá Höfuðborgarstofu.

Karen María Jónsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna hjá Höfuðborgarstofu og tekur formlega við starfinu þann 15. maí. Alls bárust 30 umsóknir um um starfið.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þar segir að Karen María taki við góðu búi af Drífu Magnúsdóttur sem hafi stýrt Upplýsingamiðstöð ferðamanna um árabil og gert hana að þeirri öflugu miðstöð sem hún sé. Bent er á, að á síðasta ári hafi 370 þúsund gestir komið á Upplýsingamiðstöðina. Drífa hverfur til nýrra starfa 1. júní næstkomandi. 

„Karen María lauk M.A. gráðu í stjórnun stofnana með áherslu á menntastofnanir frá Háskóla Íslands árið 2014 og M.A. – diploma í opinberri stjórnsýslu frá sama háskóla árið 2015. Áður hafði hún lokið doktoral gráðu í leikhúsfræðum annarsvegar og hinsvegar M.A. gráðu í þverfaglegri listgreinakennslu frá Háskólanum í Amsterdam árið 2004. Hún lauk jafnframt B.A. gráðu í listdansi frá Listaháskólanum í Arnhem – ArtEZ árið 1998.

Karen María hefur haft umsjón með stærstu hátíðum Reykjavíkurborgar síðustu fimm ár. Þar hefur hún séð um undirbúning, skipulag, markaðssetningu og framkvæmd Vetrarhátíðar, Barnamenningarhátíðar, Menningarnætur, Friðarsúlu Yoko Ono og Jólaborgarinnar Reykjavík. Hún hefur unnið í nánu samstarfi við aðra starfsmenn Höfuðborgarstofu við að þróa hátíðarnar og efla svo að eftir er tekið innan og utan landsteinanna.

Karen María hefur einnig séð um samráð og ráðgjöf til einstaklinga, félagasamtaka og fyrirtækja um viðburða- og hátíðarhald sem og stuðlað að fræðslu og þekkingarmiðlun til viðburðahaldara, ferðaþjónustuaðila, háskólanema og annarra með fyrirlestrum, málstofum og greinaskrifum. Hún hefur spilað lykilhlutverk í að markaðssetja hátíðaborgina Reykjavík (Reykjavík Festival City) sem áhugaverðan og kraftmikinn áfangastað ferðamanna. Hún hefur kynnt hátíðaborgina fyrir blaðamönnum og ferðaþjónustuaðilum hérlendis og erlendis í gegnum blaðamannamóttökur, þátttöku í ferðasýningum og fyrirlestra á ráðstefnum og málstofum.

Karen María hefur mikla innsýn í starfsemi Höfuðborgarstofu, þar með talið starfsemi Upplýsingamiðstöðvar. Menntun hennar og reynsla á svið ferðamála, rekstrar, starfsmannahalds, verkefnastjórnunar, menningarmiðlunar og lista mun nýtast vel í þeim verkefnum sem framundan eru sem og þeim áskorunum sem fylgja áframhaldandi vexti í ferðaþjónustu hér á landi,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert