Andlát: Kári Eiríksson

Kári Eiríksson
Kári Eiríksson

Kári Eiríksson listmálari er látinn, 81 árs að aldri. Hann lést á sjúkrahúsinu á Ísafirði 1. maí síðastliðinn.

Kári fæddist á Þingeyri í Dýrafirði þann 13. febrúar 1935. Foreldrar hans voru Eiríkur Þorsteinsson, kaupfélagsstjóri og alþingismaður, og Anna Guðmundsdóttir húsmóðir.

Kári stundaði nám í Myndlistar- og handíðaskóla Íslands 1953-54, Listaháskólanum í Kaupmannahöfn 1957, Listaakademíunni í Flórens 1957-59 og í Róm 1960-61.

Kári hélt fyrstu einkasýningu sína í Casa di Dante í Flórens 1958 og var fyrsta einkasýning hér heima í Listamannaskálanum 1959. Frá þeim tíma hefur hann haldið fjöldamargar stórar einkasýningar hérlendis og erlendis, en þær umfangsmestu voru 1973, 1979 og 1986 á Kjarvalsstöðum.

Kári vann að ýmsum sérverkefnum erlendis, m.a. stórri veggmynd í aðdraganda Ólympíuleikanna í Mexíkóborg, en þangað fluttist hann með fjölskylduna 1967-1968. Margar sýningar Kára hlutu mikla athygli almennings og oftar en ekki seldust sýningarverk hans upp.

Fyrrverandi eiginkona Kára er Sigurbjörg Stefánsdóttir, f. 1935, og sonur þeirra er Kári Kárason, f. 1965.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert