Hjón á sextugsaldri duttu í lukkupottinn

Lottó
Lottó

Hjón á sextugsaldri sem keyptu lottómiða í Fjarðarkaup duttu í lukkupottinn um helgina og fengu 48,6 milljónir í sinn hlut. Komu þau á skrifstofu Getspár í morgun og voru að vonum ánægð. 

Sögðust hjónin vera dyggir lottóspilarar og kaupa miðana alltaf á sama stað. Það var því mikil spenna þegar þau höfðu lesið fréttina um að vinningsmiðinn hefði verið seldur þar. Konan fór fyrst yfir sinn miða en þar var enginn vinningur. Því næst fór maðurinn yfir sinn miða og var hann ekki lengi að koma auga á réttu tölurnar. 

Hjónin fögnuðu gríðarlega og kom sonur þeirra hlaupandi til að athuga hvað hefði gerst. Það eina sem konan gat sagt í geðshræringu sinni var: „Pabbi vann, pabbi vann.“

„Gleði þeirra varð ennþá meiri þegar þau uppgötvuðu að upphæðin er skattfrjáls og ætla þau að nýta fjármálaráðgjöf sem þeim stendur til boða.  Þegar þau voru spurð að því hvað þau ætli að gera við peningana sögðust þau hugsanlega fara í gott og langt sumarfrí, annað væri ekki ákveðið enda varla komin niður á jörðina ennþá,“ segir í tilkynningu frá Getspá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert