Ljósmyndarinn Spencer Cox bar sigur úr býtum í keppninni „Travel Photographer of the Year“ í aldursflokknum 15 til 18 ára fyrir fjórar myndir sem hann tók á Íslandi síðasta sumar.
Um er að ræða virta keppni sem hefur staðið yfir í mörg ár og telst það mikill heiður fyrir Cox hljóta fyrstu verðlaun í sínum flokki.
Myndirnar verða sýndar í galleríi í London frá og með júlí næstkomandi.
Nánari upplýsingar um Cox og myndirnar hans má finna hér.