Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins

Sameinaði lífeyrissjóðurinn varð til með sameiningu Lífeyrissjóðs byggingarmanna og lífeyrissjóðs …
Sameinaði lífeyrissjóðurinn varð til með sameiningu Lífeyrissjóðs byggingarmanna og lífeyrissjóðs málm- og skipasmiða, en síðar bættust við fleiri lífeyrissjóðir. Ómar Óskarsson

Stjórnir Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs hafa samþykkt að hefja könnunarviðræður með sameiningu sjóðanna í huga, að því er fram kemur í fréttatilkynningu sem sjóðirnir sendu frá sér í dag. 

Slíkar hugmyndir hafa áður verið reifaðar óformlega, en ekki hefur áður verið ákveðið að láta reyna á sameiningu með formlegum hætti.

Sameinaði lífeyrissjóðurinn er fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins, sé miðað við hlutfall hreinna eigna lífeyrissjóða og Stafir er sá níundi stærsti. Verði lífeyrissjóðirnir sameinaðir, þá yrðu þeir fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn með um 10% hreinna eigna lífeyrissjóðanna, alls um 310 milljarða króna.

Uppbygging sjóðanna er svipuð og bakland þeirra sömuleiðis.

Sameinaði lífeyrissjóðurinn varð til í ársbyrjun 1992 með sameiningu Lífeyrissjóðs byggingarmanna og lífeyrissjóðs málm- og skipasmiða. Síðar bættust við lífeyrissjóðir bókagerðarmanna, garðyrkjumanna, múrara, verkstjóra og fleiri. 

Stafir lífeyrissjóður varð síðan til við samruna Samvinnulífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðsins Lífiðnar í ársbyrjun 2007. Til Stafa greiða starfsmenn fyrirtækja sem áður tilheyrðu Sambandi íslenskra samvinnufélaga og félagsmenn í Rafiðnaðar-sambandi Íslands og Matvæla- og veitingafélagi Íslands.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert