Björgunarsveitir frá Vík, Klaustri og Álftaveri hafa verið kallaðar út vegna rútuslyss á Mýrdalssandi. Smárúta með ellefu farþega fór út af veginum og endaði í skurði um 10 km austan við Hjörleifshöfða, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg.
Fimm eru slasaðir en enginn þeirra alvarlega.
Sjúkralið og björgunarsveitir eru á staðnum og verið er að veita hinum slösuðu þá aðstoð sem þeir þurfa og flytja af vettvangi.